Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Spáin

Völvan

 Janúar:
Rólegt verður yfir landinu á fyrstadegi ársins. Fólk mun ekki fara á fætur fyrr en um hádegi og jafnvel síðar þó eigi síðar en á öðrum degi ársins. Völva síðunar mun ekki sjá mótmæli fyrir fyrr en í fyrsta lagi á öðrum degi. Enda eru hörðustu mótmælendur landsins á aldrinum 14-16 ára. Krakkarnir munu þó halda áfram að mótmæla þangað til að grunnskólarnir byrja aftur og verður þá allt með kyrrum kjörum nema í frímínútum, verður þá töluvert um pústra milli skólabarna og lögreglu. Sett verða lög um frímínútur skólabarna og verða þær styttar um helming. Menntamálaráðherra mun láta til sín taka og fá í gegn á Alþingi að skipta út stærðfræðikennslu fyrir skiltagerð og slagorðakennslu. Rökin fyrir því er að nú þurfa íslendingar bara kunna að deila einum kjötfarspakka með fimm fjölskyldumeðlimum. Grunnskólakrakkar munu mæta fyrir utan kringlunna og mótmæla þessari aðgerð (á gamla mátan).

Febrúar:
Ríkisstjórnin kennir um of mörgum dögum í febrúarmánuði síðasta árs um hvernig fór fyrir landi og þjóð og mun það ekki endurtaka sig á því næsta. Einn dagur verður því skorinn niður af febrúar í sparnaðarskyni og verða dagar mánaðarins 28 í staðinn fyrir 29 eins og ákveðið var á síðasta ári. Atvinnuleysi mun aukast og fleiri missa vinnuna. Alþingismenn munu fá sérstakan bónus fyrir vel unnin störf undir álagi síðasta árs. Grunnskólakrakkar munu mótmæla þessu fyrir utan Pizza Hut við Sprengisand,léleg skilti og slæm slagorð á þeim. Dæmi um slagorð á skilti grunnskólakrakkana: "mér langar í pizzu í hádegismat". Menntamálaráðherra fagnar því að skilti séu farin að sjást en sættir sig ekki við þágufallssýki ungafólksins og beitir sér fyrir því á Alþingi út febrúar.

Mars:
Prins Póló sala á heimsvísu mun aukast töluvert. Pólska fyrirtækið Olza auglýsir í eina fjölmiðli íslendinga eftir starfsfólki í verksmiðju sína. Fjölskyldur sameinast í söfnun fyrir flugmiða fyrir duglegasta einstakling fjölskyldunar til að þreyta inntökupróf inní Olza akademíuna. Framleiðsla frjógaðra eggja hjá hænsnabúi stjörnueggja mun fara í gang og ungar klekjast út í lok mánaðar. Tossar í skiltagerð munu stela stropuðum úr bónus til að grýta í Alþingishúsið.

völvan mun svo fara yfir næstu 3 mánuði á morgun

Fólksfluttningar Íslendinga til austur Evrópu verður meira áberandi því prins póló sala á heimsvísu


mbl.is Kryddsíld lokið vegna skemmdarverka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

össs..

Hér ætla ég ekki að skrifa um hina ömurlegu ríkisstjórn, fávitan sem situr í seðlabankastjórastólnum, Steingrím Njálsson, Fanta Lemon, Túlípana, leikskólagjöld, hrun bankanna, ofurlaun leikskólakennara, landið sem prins póló kemur frá, Hitler, Stalín, Bill Gates eða verðlagið í bónus. Það verður allt sett í sorptunnuna 

Hér verða einungis gæðagreinar frá höfundi um hugsanir hans eða sögur af fólki sem hann hefur séð, ekki séð eða hefur ímyndað sér að væri til. Athugið að kettir, hundar og selir telst allt til dýra og mun höfundur ekki sjá sér fært að tala um þann málaflokk, þetta verður semsagt fokdýrt blogg.

Höfundur áskilur sér öll þau réttindi sem þarf til að halda uppi bloggi. Þar með talið lygum, ýkjum, skreytingum, nafnabreytingum og tómum uppspuna.

Allir þeir sem hafa hug á að lesa þetta blogg býð ég velkomin um borð um leið og ég segi þeim að festa sætisólarnar fast.

 

Góðar stundir,

Megi mátturinn og dýrðin vera ykkar innan handar þangað til annað kemur í ljós

 

Á morgun mun völvan skrifa inn á síðuna um óorðna atburði morgundagsins og dagsins þar á eftir og svo framvegis þangað til 2009 er ekki lengur 2009 heldur 2010. 


mbl.is Með áverka eftir flugeldafikt
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband