össs..

Hér ætla ég ekki að skrifa um hina ömurlegu ríkisstjórn, fávitan sem situr í seðlabankastjórastólnum, Steingrím Njálsson, Fanta Lemon, Túlípana, leikskólagjöld, hrun bankanna, ofurlaun leikskólakennara, landið sem prins póló kemur frá, Hitler, Stalín, Bill Gates eða verðlagið í bónus. Það verður allt sett í sorptunnuna 

Hér verða einungis gæðagreinar frá höfundi um hugsanir hans eða sögur af fólki sem hann hefur séð, ekki séð eða hefur ímyndað sér að væri til. Athugið að kettir, hundar og selir telst allt til dýra og mun höfundur ekki sjá sér fært að tala um þann málaflokk, þetta verður semsagt fokdýrt blogg.

Höfundur áskilur sér öll þau réttindi sem þarf til að halda uppi bloggi. Þar með talið lygum, ýkjum, skreytingum, nafnabreytingum og tómum uppspuna.

Allir þeir sem hafa hug á að lesa þetta blogg býð ég velkomin um borð um leið og ég segi þeim að festa sætisólarnar fast.

 

Góðar stundir,

Megi mátturinn og dýrðin vera ykkar innan handar þangað til annað kemur í ljós

 

Á morgun mun völvan skrifa inn á síðuna um óorðna atburði morgundagsins og dagsins þar á eftir og svo framvegis þangað til 2009 er ekki lengur 2009 heldur 2010. 


mbl.is Með áverka eftir flugeldafikt
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband